Meðgönguþjálfun og undirbúningur fyrir fæðingu
Push Prep
Kennt mán, mið og fös kl. 12:45
Markmiðið með námskeiðinu er að stuðla að aukinni virkni á meðgöngu og í fæðingunni sjálfri. Byggt er á hugmyndafræði sem hefur sýnt fram á betri upplifun kvenna af fæðingu, auk þess sem konur eru líklegri til að fara sjálfkrafa af stað. Á námskeiðinu er lagt upp með jafnvægi á milli hreyfingar, öndunar og slökunar. Kenndar verða æfingar sem losa um liðbönd og stífa vöðva til að koma líkamanum í betra jafnvægi og skapa meira pláss fyrir barnið. Umræður og fræðsla eru hluti af tímunum með ljósmóður.

Í síðasta tímanum eru stuðningsaðilar hvattir til að koma með en verður þá farið yfir ýmsar æfingar/stöður sem krefjast stuðnings, sem og ýmis bjargráð í fæðingu.
Námskeiðið er kennt í Thera Studio, Bæjarlind 12, 201 Kópavogi
Námskeiðið er kennt í Thera Studio, Bæjarlind 12, 201 Kópavogi
Hvað gerir meðgönguþjálfun einstaka?
Hvað gerir meðgönguþjálfun einstaka?
✓Kennd af sjúkraþjálfurum
✓ Sérhæfð að meðgöngu
✓ Litlir hópar og persónuleg leiðsögn
✓ Öndunaræfingar og slökun
✓ Undirbúningur fyrir fæðingu
✓ Hvetjandi samfélag verðandi mæðra
Hvað leggjum við áherslu á?
✓ Styrk og úthald
✓ Hreyfanleika
✓ Öndun og slökun
✓ Líkamsvitund
✓ Góða líkamsbeitingu
✓ Undirbúning fyrir fæðingu
Hvað færðu út úr námskeiðinu? ✓ Aukið sjálfstraust á meðgöngu
✓ Sterkari líkama
✓ Betri líkamsvitund
✓ Verkfæri til að nota í fæðingu
✓ Meiri vellíðan í daglegu lífi
✓ Traustan grunn fyrir tímabilið eftir fæðingu
UNDIRBÚNINGUR • STYRKUR • SLÖKUN
Meðgönguþjálfun+ Push Prep á föstudögum (30vikur+)
Örugg og fagleg þjálfun fyrir verðandi mæður sem vilja viðhalda styrk, auka vellíðan og undirbúa líkamann fyrir fæðingu og tímabilið eftir hana.
Meðgönguþjálfun sameinar styrktarþjálfun, hreyfanleika, öndunaræfingar og fræðslu sem styður þig í gegnum meðgönguna og hjálpar þér að mæta fæðingunni af meira öryggi og sjálfstrausti
Push prep er viðbót fyrir mæður komnar 30v + og mun Inga María ljósmóðir sjá um föstudagstímanna en hún hefur víðtæka reynslu á að undirbúa líkama fyrir fæðingu. Færri komast að í þá viðbót, tryggðu þér þitt pláss.
Patrick Jones - Course author